Einfaldar vélsaumsæfingar

1990
Tilraunaprufur, 6 stk. Einfaldar vélsaumsæfingar og skreytingar í saumavél. Sýnishorn kennara. Unnin á meðan kennari var í starfi við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla eftir 1990. a) Beinar línur saumaðar í horn. Að læra að beygja í saumavél b) Tvístungunál. Saumað með tveimur litum c) Ásaumur með skrautsaumi og beinum línum d) Ásaumur með beinum saumi (beinu saumspori) e) Skreyting á efni með vélsaumssporum og ýmsum þráðum f) Stafamerking með bómullarbandi Skreyting með einföldum vélsaumi. Einföld vélsaumstækni að sauma tvöfalt efni saman, að fóðra. Góð saumavélaæfing, bæði í samsaumi og skreytingu. Áhersla lögð á að kenna nemendum að sauma fyrir horn. Sjá skreytingar.  Sjá HANDMENNT, rit Handavinnukennarafélags Íslands frá 1988, bls. 11. Sjá skráningu 39. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Einfaldar vélsaumsæfingar
Ártal
1990
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-11-55
Stærð
0 x 23 x 30.5 cm Breidd: 23 Hæð: 30.5 cm
Staður
Staður: Mýrarhúsaskóli eldri, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna
Efnisorð:
Textíll

Upprunastaður

64°9'9.4"N 21°59'20.3"W