Handavinnupoki

1957 - 1958
 Handavinnupoki saumaður í 10 ára bekk 1957-1958. Skylduvinna í 9 ára bekk samkvæmt námskrá (drög frá 1948), en Sigrún saumaði pokann ári seinna vegna flutnings á milli skóla. Pokinn er allur handsaumaður. Hann er skreyttur útsaumslínum meðfram hvorri hlið að framan og að aftan. Fangamarkið SB og ártalið 1958 er saumað á framhlið pokans en að aftan er mynd af fugli, hvorutveggja saumað með krosssaumi. Pokinn er dreginn saman að ofan með heklaðri snúru. Stærð: 29.5 x 27 sm. Á þessum árum fóru nemendur yfirleitt heim með handavinnuna og fengu aðstoð ef þess þurfti. Kennari: Ingibjörg Hannesdóttir. Grunnskólavinna úr Melaskóla 1957-1958. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Handavinnupoki
Ártal
1957 - 1958
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-11-8
Stærð
0 x 29 x 27 cm Breidd: 29 Hæð: 27 cm
Staður
Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð:
Skólahandavinna

Upprunastaður

64°8'33.7"N 21°57'25.3"W