Prufumappa (12 ára mappan)
1959

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Prufumappa. Skylduvinna í 12 ára bekk (12 ára mappan). Prufur númer 8, 9, og 13 eru unnar í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar veturinn 1959-1960. Öll vinnan er samkvæmt námskrá 1960.
Mappan er úr pappír með útsaumaðri kápu, skreytt með krosssaumi. Á framhlið kápunnar er fangamarkið AJ og munstur í efri hornum. Neðst er saumað 12-C með örmjórri línu undir. Á bakhlið eru einnig munstur í efri hornum. Neðst er ártalið 1959 með örmjórri línu undir. Í miðju er fugl á grein. Tunguspor (kappmelluspor) saumað í kringum kápuna.
Innihald möppu
Salúnsvefnaður. Stoppprufa.
Handskrifaðar leiðbeiningar við salúnsvefnaðinn.
Einskeftustopp.
Prjónastopp.
Prjónaprufa. Prjón lykkjað saman.
Skrifaðar leiðbeiningar.
Handgert hnappagat.
Skriflegar leiðbeiningar
Stafaprufa. Skriflegar leiðbeiningar á bakhlið.
Að bæta. Skriflegar leiðbeiningar á bakhlið.
Háleistar með frönskum hæl og stjörnuúrtöku.
Hælúrtaka. Lykkjuupptaka á hæl.
Úrtaka aukalykkna. Stjörnuúrtaka.
Brydduð hnappagöt.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Aðalheiður Jóhannesdóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Aðalheiður Jóhannesdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Aðalheiður Jóhannesdóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Prufumappa (12 ára mappan)
Ártal
1959
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-3-3
Stærð
0 x 22 x 23 cm
Breidd: 22 Hæð: 23 cm
Staður
Staður: Melaskóli, Hagamelur 1, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'33.7"N 21°57'25.3"W



















