Mynd: Seðlabanki Íslands
Mynd: Seðlabanki Íslands

Seðill, peninga-

1929
100 krónu seðill úr fyrstu seðlaröð Landsbanka Íslands. Fór í umferð 27. apríl 1929 (skv. aðalbók Landsbankans). Undirskriftir. Á seðlum í þessari röð eru báðar undirskriftir ávallt prentaðar. Á árunum 1927 og 1928 setti alþingi nýja löggjöf um Landsbanka Íslands. Þar voru mörkuð þau þáttaskil að Landsbankanum var fengið hlutverk seðlabanka og einkaréttur til seðlaútgáfu. Skyldi Landsbankinn gefa út seðla sem fullnægðu gjaldmiðilsþörf í innanlandsviðskiptum. Í lögunum er gert ráð fyrir því að seðlar bankans séu gulltryggðir og innleysanlegir gegn gulli, en tekið fram að ákvæði um innlausnarskylduna komi ekki til framkvæmda fyrr en alþingi ákveði það sérstaklega. Það var ekki gert. Seðlar gefnir út samkvæmt lögum nr. 10 / 15. apríl 1928 um Landsbanka Íslands, 100 kr. seðill þó samkvæmt lögum nr. 48 / 31. maí 1927 um Landsbanka Íslands.

Aðrar upplýsingar

Teiknari: Gerhard Heilmann
Mynts.prentsm.:
Danmarks Nationalbank
Útgefandi:
Landsbanki Íslands
Ártal
1929
Safnnúmer
Safnnúmer A: ISB-197
Stærð
96 x 148 mm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Safn Íslandsbanka
Áletrun / Áritun
Myntmerki Myntmerki
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Seðill, peninga-
Myndefni:
Fálki
Myndefni:
Bókstafur
Myndefni:
Konungur
Myndefni:
Vangamynd
Myndefni:
Ártal
Myndefni:
Tölustafur
Útgáfa / Sería
050334
Gjaldmiðill
Nafnverð: 100 Króna/-ur
Heimildir
Opinber gjaldmiðill á Íslandi Útgáfa og auðkenni íslenskra seðla og myntar, Reykjavík 2002 Lög nr. 48 / 31. maí 1927 um Landsbanka Íslands [II. kafli: Seðlabankinn]. Lög nr. 10 / 15. apríl 1928 um Landsbanka Íslands [II. kafli: Seðlabankinn].