Legsteinn

Höggvinn steinn - íslenskt grágrýti. Mesta hæð 61,5 cm, mesta breidd 41 cm. Steinninn er höggvinn dálítið uppmjór og myndar einskonar píramída. Hann er þykkastur um miðjuna og á framhlið hans er kantur. Að aftan er steinninn rennisléttur. Brúnir eru misþykkar og í þær höggvið strik. Bæði að framan og aftan. Á steininn er höggvið letur. Að framan: DROTTENN / LATMIGDR / EIMAVELS / EMDIGGVNI / AKOPISRELÞ / EGARASTEIN / SÆTHANNSV / AFSÆLVÆRÐ Aftan á steininn er höggvið: HO / NUMNADÞIN / GAF Þetta útleggst sennilega svona: Drottin láti mig dreyma vel sem dyggu(m) Jakob isr(a)el þegar á stein sætt hann svaf sæl værð (og aftan á) honum náð þín gaf.

Aðrar upplýsingar

Jakob Jónsson, Hlutinn gerði
Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-5286 Safnnúmer B: 2018-6
Stærð
0 x 41 x 61.5 cm Breidd: 41 Hæð: 61.5 cm
Staður
Staður: Minni-Brekka, 570-Fljótum, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Legsteinn
Efnisorð:
Steinn, unninn

Upprunastaður

66°1'18.8"N 19°2'18.5"W