Útvarp

Útvarp að stærð 62,4 cm x 32 cm x 35,9 cm. Á svartri pappaplötu stendur: REG.U.S.PAT.OFF.MARCA REGISTRA - RADIO CORPORATION OF AMERICA - RCA INTERNATIONAL DIVISION NEW YORK, N.Y. UNITED STATES OF AMERICA. Útvarpið er með viðarumgjörð, hátalarinn er klæddur ljósbláu og ljósu lausofnu efni. Glerplata sýnir stöðvarnar, örlítið hefur kvarnast úr henni hægra megin. Fimm brúnar plastskífur eru á útvarpinu, ein á hvorri skammhlið og þrjár framan á. Þær eru til að stilla bylgjulengd og hljómhæð. Bakið á útvarpinu er úr svartri pappaplötu. Svört rafmagnssnúra er á útvarpinu en klóna vantar.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: BSk-5284 Safnnúmer B: 2018-4
Stærð
62.4 x 32 x 35.9 cm Lengd: 62.4 Breidd: 32 Hæð: 35.9 cm
Staður
Staður: Aðalgata 16, 550-Sauðárkróki, Skagafjörður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Útvarp

Upprunastaður

65°45'3.8"N 19°39'1.6"W