Kútur, skráð e. hlutv.
1946 - 1964

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Kútur eða lítil tunna. Á botni kútsins eru stafirnir TR sem standa fyrir Tunnuverksmiðju Ríkisins. Kúturinn er ónotaður og sem nýr. Kemur úr hraðfrystihúsinu Hrímni við Tjarnargötu á Siglufirði. Húsið er líklega frá árunum 1928-1930 og með elstu frystihúsum landsins. Gamla frystihús Ásgeirs Péturssonar, síðar hraðfrystihúsið Hrímnir hf. Valgeir Sigurðsson, veitingamaður á Siglufirði, er nú eigandi hússins og bauð hann starfsmönnum Síldarminjasafnsins að koma inn og hirða þá hluti sem verðugir eru fyrir safnið. Sá gjörningur átti sér stað 24. febrúar 2012 og voru við það tilefni skráðir um 20 munir sem ákvað var að safnið myndi varðveita. Venjuleg tunna, heiltunna, tekur um 120 lítra, hálftunna 60 ltr. og fjórðungur (kvartil) 30 ltr., áttungur var minnst og tekur 15 ltr. Kútar voru allar smátunnur kallaðar sem voru minni en hálftunnur, svo sem kvartil og áttungur. Legill er einnig nafn á smákút (Silfur hafsins e. Ástvald Eydal Helgafell 1948 – bls. 115. Hannes Baldvinsson viðtal í des ´08. Orðabók Menningarsjóðs) Sennilega voru 12 tunnuverksmiðjur reknar á Íslandi á 20. öld og helmingur þeirra á Siglufirði. Tunnuverksmiðja ríkisins var rekin á Siglufiði frá 1946-64, er hún brann. En hún var endurbyggð 1965 og starfaði til 1971.
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Valgeir Sigurðsson
Ártal
1946 - 1964
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ
Safnnúmer B: 2012-50-19
Stærð
33 x 33 x 39 cm
Lengd: 33 Breidd: 33 Hæð: 39 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kútur, skráð e. hlutv.
