Auglýsing, + hlutv.

Pappaspjald með auglýsingu fyrir verslun Baldvin Ryel. Spjaldið er blátt og um kantana fléttast gylltar blómaskreytingar. Á miðju spjaldinu er stór gylltur hringur með mynd af dökkhærðri konu. Hún er skrautlega klædd með rautt blóm í hári og perlufesti margvafða um hálsinn. Hún heldur á kampavínsglasi, í bláum kjól og gulmunstraðri yfirhöfn. Á auglýsinguna er prentað undir myndinni textinn : Baldvin Ryel. Akureyri Siglufirði. Fataverzlun. Ullarvöru og Vafnaðarvöruverzlun. Auglýsingin barst safninu úr versluninni Blómfríði sem var í Hafnarstræti 19, Akureyri. Lokaði í september 2017.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-70
Stærð
36 x 26 cm Lengd: 36 Breidd: 26 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munaskrá - MSA
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Auglýsing, + hlutv.
Myndefni:
Kampavínsglas
Myndefni:
Kona