Matarkassi

1921
Matarkassa þennan átti Jóhannes Sigurðsson skipstjóri á Auðnum á Akranesi (f. 03.03.1895 á Sýruparti á Akranesi)þ Hann byrjaði á unglingsaldri að stunda sjó og var hann um skeið, 1910-1912, á gömlu kútterunum, "Guðrúnu Soffíu" og "Isabellu" frá Reykjavík og þá með Eiríki Eiríkssyni skipstjóra frá Breið á Akranesi. Fyrir innan tvítugt var hann formaður á opnu skipi hinn síðasti á Akranesi ásamt Guðjóni Þórðarsyni frá Vegamótum. Jóhannes byrjaði skipstjórn á mótorbátum árið 1921 og var óslitið skipstjóri á þeim í 30 ár. Bátar þeir sem hann var með eru taldir í réttri röð og allir frá Akranesi: Einar Þveræingur, Víðir, Ármann, Hrefna, Ásmundur og Þorsteinn. Matarkassann lét hann smíða handa sér í byrjun skipstjóraferils síns ( 1921) og gafði hann jafnan með sér á sjóinn eftir það. Sigurður Jónsson í Bæ á Akranesi, tengdafaðir Jóhannesar, smíðaði kassann en plötun á lokið setti Jón Mýrdal Sigurðsson smiður, mágur hans, er flaskast hafði úr því með hankanum. Jóhannes hefur verið í röð farsælustu og aflamestu skipstjóra á Akranesi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1921
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-829-1
Staður
Staður: Auðnir, Akraneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Matarkassi

Upprunastaður

64°7'3.3"N 21°48'38.9"W