Miðunarskífa
1920 - 1960

Varðveitt hjá
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
Miðunarskífuna átti Kristján Hannes
Jónsson hafnsögumaður á Ísafirði (f.7.10.1900,d.11.7.1972 ,á Akranesi).
Kristján stundaði sjó frá unglingsárum og fram eftir aldri. Lauk prófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Fæddur á Hnífsdal og var hafnsögumaður
á Ísafirði í 20 ár. Ekki er vitað um aldur skífunnar en mun hafa
verið fyrst notuð á Kútter. Gefandi Jón Valdimar Valdimarsson.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1920 - 1960
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1983-88-1
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Miðunarskífa
