Saxherfi

1925 - 1940
Saxherfi Lúðvíks. Herfið er nokkuð heillegt, járn ryðgað en heilt, tréverk heillegt og sæti. Beislið á herfinu var bætt við og rauðmálað eftir gömlum lýsingum af því. Herfið er komið frá Kalmanstungu í Borgarfirði.  Lúðvík Jónsson (1887-1974) búfræðikandídat lét smíða tvö hestaherfi (saxherfi og rótherfi) byggð á hugmyndum sínum um jarðvinnslu við íslenskar aðstæður: aðeins skyldi hræra í efsta og næringarríkasta lagi jarðvegsins, slétta það og bera í það áburð - þannig myndu innlendu grastegundirnar ná sér vel á strik. Þannig varð til græðislétta. Blómaskeið herfanna hans Lúðvíks var á árabilinu 1925-1930. Herfin virðast hafa verið algeng í sumum sveitum, m.a. Borgarfirði. Lúðvíks-herfin eru góð dæmi um íslenska verkfærahönnun og verkfærasmíð. 

Aðrar upplýsingar

Ártal
1925 - 1940
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1202 Safnnúmer B: 2002-1-1
Staður
Staður: Kalmanstunga 1, 320-Reykholt í Borgarfirði, Borgarbyggð, Hvítársíða, Ísland
Sýningartexti
Lúðvík Jónsson (1887-1974) búfræðikandídat lét smíða þessi tvö hestaherfi byggð á hugmyndum sínum um jarðvinnslu við íslenskar aðstæður: aðeins skyldi hræra í efsta og næringarríkasta lagi jarðvegsins, slétta það og bera í það áburð - þannig myndu innlendu grastegundirnar ná sér vel á strik. Þannig varð til græðislétta. Blómaskeið herfanna hans Lúðvíks var á árabilinu 1925-1930. Herfin virðast hafa verið algeng í sumum sveitum, m.a. Borgarfirði. Lúðvíks-herfin eru góð dæmi um íslenska verkfærahönnun og verkfærasmíð.  
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Saxherfi
Myndefni:
Saxherfi

Upprunastaður

64°43'49.6"N 20°47'49.4"W