Bóndi

1950 - 1960
Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Sigurður var fæddur 27. júlí 1883, sonur hjónanna Margrétar Sveinsdóttur og Sigurðar Sigurðssonar frá Barkarstöðum í Fljótshlíð. Foreldrar hans bjuggu allan sinn búskap á Seljalandi undir Eyjafjöllum og þar ólst Sigurður upp ásamt fjórum bræðrum og einni systur. Árið 1906 giftist Sigurður heitkonu sinni Sigríði Jónsdóttur frá Vesturbænum á Seljalandi,sem hann missti 1923 frá 6 börnum þeirra, því elsta 17 ára. Árið 1907 fluttust þau hjón til Vestmannaeyja og var Sigurður meðeigandi í vélbát, er þá voru óðum að ryðja sér til rúms, og gerðist hann vélstjóri á honum. Bátur þessi hét Sigríður formaður. Árið 1928 lagði hann fyrir sig smíðar, en trésmíði hafði hann lært á unga aldri, og hafði verkstæði bæði með öðrum og sjálfstætt, og á verkstæðinu vann hann þar til hann andaðist 25. janúar 1961 á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1950 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer A: MRP-120
Stærð
12 x 7 cm
Staður
Staður: Seljaland, Rangárþing eystra
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Alm. myndaskrá
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Bóndi
Myndefni:
Hversdagsklæðnaður
Myndefni:
Húfa, sem höfuðfat
Myndefni:
Húströppur
Myndefni:
Húsveggur