Ljósmyndari

14.04.1988
Ásgrímur Ágústsson, ljósmyndari, stendur við ljósmyndasjálfsala sem hann keypti á ljósmyndastofu sína, Norðurmynd, í Glerárgötu 20 árið 1988. Kassinn, eins og hann var kallaður, var í forstofunni en fara þurfti inn á ljósmyndastofuna til að kaupa sérstaka mynt í sjálfsalann. Myndirnar voru síðan klipptar niður inni á ljósmyndastofunni. Ásgrímur sagði í viðtali við Dag, þar sem þessi mynd birtist, "að kosturinn við að hafa "kassann" við ljósmyndastofuna, væri sá að þá gæti fólk fengið góð ráð hjá fagmönnunum um notkun hans. "Sumir, sérstaklega þeir sem eldrieru, eru dálítið smeykir við þetta fyrst, en sjá svo að þetta er eins auðvelt og að drekka vatn." Verðið fyrir passamynd á stofunni var 700 kr en 300 kr í "Kassanum". Hægt var að velja um að fá 4 myndir eða eina stóra. Framköllunin var á svipstundu eða 4 mínútur. Þjónustan var m.a. auglýst á stóru og miklu útiskilti á umferðareyju á Glerárgötu. Ásgrímur rak ljósmyndastofu í Glerárgötu 20 um langa hríð þar til hann flutti ljósmyndastofuna í Hafnarstræti 90  árið 1991. (ÁÁ og Dagur. 14.4.1988)

Aðrar upplýsingar

Ártal
14.04.1988
Safnnúmer
Safnnúmer A: Dagur-2134
Staður
Staður: Glerárgata 20, 600-Akureyri, Akureyrarbær
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Ljósmyndari
Myndefni:
Ljósmynd
Myndefni:
Ljósmyndavél
Myndefni:
Ljósmyndastofa
Myndefni:
Ljósmyndavara
Myndefni:
Passamynd
Myndefni:
Sjálfsali
Heimildir
Birtist í Degi 14.4.1988

Upprunastaður

65°41'13.6"N 18°5'41.5"W