Avery

1918
Kveikja þessi er úr fyrsta vélknúna jarðvinnslutækinu (traktornum) sem kom til landsins. Þórður Ásmundsson útgerðarmaður á Akranesi og Bjarni Ólafsson skipstjóri áttu tækið og var það lengi í notkun við jarðvinnslu á Akranesi. Þeir félagar keyptu tækið til landsins árið 1918. Júlíus Þórðarson framkvæmdarstjóri á Akranesi, sonur Þórðar, gaf safninu kveikjuna. Kveikjan er það eina sem eftir er af þessum traktor í dag.

Aðrar upplýsingar

Gefandi: Hans Júlíus Þórðarson
Eigandi:
Bjarni Ólafsson, Notandi
Eigandi:
Þórður Ásmundsson, Notandi
Titill
Sérheiti: Avery
Ártal
1918
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-786-1
Stærð
17 x 14 x 14 cm Lengd: 17 Breidd: 14 Hæð: 14 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Akraneskaupstaður, Akraneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti