Skrifpúlt

1769
Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Skrifpúlt úr viði sem hefur verið málaður eða bæsaður og er brúnt að lit. Að framna eru 2 fjalir á hjörum og þegar þær eru opnaðar koma í ljós 6 mis stórar skúffur. Undir neðri fjölinni eru 2 útdraganlegar spýtur sem er ætlað að styðja undir fjölina þegar hún er opinn. Þetta var þá orðið að eins konar borði. Þegar fjalirnar hafa verið opnaðar er púltið blátt að lit. Efsta skúffan er upprunaleg. Blái liturinn framan á henni er öðruvísi en á hinum skúffunum svo og rauði liturinn sem notaður er í skreytingu. Á efstu skúffunni er áletruninn"Anno 1769" málað í hvítu og rauðu. Trúlega eru næstu 2 skúffur einnig upprunalegar en hafa verið málaðar. Viðurinn og smíðin á þeim líkist að minnsta kosti efstu skúffunni. Framan á öllum skúffunum er málað skraut í rauðum og hvítum lit. Á hverri skúffu er hnúður til að opna hana. Trúlega hefur verið lykilskrá í púltinu en er þar ekki lengur. Krókur og lykkja sem eru núna í púltinu hafa trúlega verið sett þegar það var lagað. Skrifpúlt þetta er úr eigu Kristjáns E. Jóhannessonar (1898-1990) fyrsta hreppstjórans á Dalvík en hann er faðir gefanda. Skrifpúltið var í geymslu á Dalvík og fólkið sem hafði það undir höndum hafði pata af því að púltið tilheyrði fjölskyldu Kristjáns. Eftir að það var staðfest fékk hann það góðfúslega afhent. Þegar Kristján fékk púltið voru geymdir í því naglar. Gefandi hefur eftir föður sínum að faðir hans, Jóhannes Þorkelsson bóndi á Ytra-Holti í Svarfaðardal, hafi átt þetta púlt og Kristján mundi eftir því á heimili sínu. Jóhannes var fæddur 8. apríl 1856 og dó 18. september 1924. Gefandi segir ennfremur að púltið hafi ekki komið í hendur föður síns fyrr en um 1950 en eftir það var það á heimili Kristjáns í Brekku á Dalvík. Eftir að Kristján fékk púltið lét hann laga það og smíða nýjar skúffur en hélt að minnsta kosti efstu skúffunni upprunalegri og trélega þeim næstu fyrir neða líka. Gefandi fékk púltið að gjöf frá föður sínum. Ekki er vitað hver átti skrifpúltið á undan Jóhannesi en ef marka má áletrunina á efstu skúffunni hafa einhverjir átt það á undan Jóhannesi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1769
Safnnúmer
Safnnúmer A: 1424
Stærð
45.1 x 27.4 x 37.5 cm Lengd: 45.1 Breidd: 27.4 Hæð: 37.5 cm
Staður
Staður: Ytra-Holt, Dalvíkurbyggð, Svarfaðardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skrifpúlt

Upprunastaður

65°57'2.2"N 18°33'19.2"W