Rjúpan

Líkanið er af skipi Björns Ólafssonar (1857-1890) formanns á Akranesi. Hann var í fremstu röð formanna á Skaga á sinni tíð.skip hans hét Rjúpan og var sexæringur með Engeyjarlagi svonefndu. Björn Ólafsson (1895-1974) fyrrum ráðherra gaf Byggðasafninu líkanið 1965. Hann er nefndur eftir Birni formanni enda bróðursonur hans. Björn ráðherra ólst upp á Akranesi á bernskuárum. Helgi S. Eyjólfsson frá Litla-Bakka á Akranesi smíðaði líkanið að beiðni Björns Ólafssonar eftir uppdrætti Hafliða Hafliðasonar skipasmiðs en sá uppdráttur fylgir með skipinu.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Rjúpan
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-171-1
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti