Hefill

Varðveitt hjá
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi
Hefilinn átti Guðmundur Hansson í Akurgerði á Akranesi ( f. 1876, d.1961).
Hefilinn smíðaði Ármann Þórðarsson frá Fiskilæk í Melasveit en hann var bróðir Matthíasar þjóðminjavarðar og Ágústs Flygering útgerðsmanns og alþingismanns í Hafnarfirði.
Ármann bjó um skeið í Marbakka á Akranesi en fluttist svo til Ameríku. Hann var lærður smiður og listfengur.
Sveinsstykkið hans var altarið í Akraneskirkju (byggð 1896). Ármann lék vel á orgel og var hann organisti í Akraneskirkju. Synir Guðmundar í Akurgerði gáfu safninu hefilinn 1962.
Aðrar upplýsingar
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 1959-1510-1
Stærð
63 x 7.5 x 7 cm
Lengd: 63 Breidd: 7.5 Hæð: 7 cm
Staður
Staður: Akurgerði, Traðarbakki, Akraneskaupstaður, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°19'6.0"N 22°4'56.5"W
