Kaffistell

Varðveitt hjá
Byggðasafn Dalvíkurbyggðar Hvoll
Kaffistell sem er rjómagult að lit. Hamraður munsturbekkur er á öllum hlutunum svo og gyllt rönd á brúnum og höldum. Kaffikannan er með loki. Hún er 21cm á hæð og 21,2 cm á breidd. Neðan á botninum stendur"Sunshine Reg 561073 J.&G.MEAKIN ENGLAND CROWN". Bollarnir eru 4. Þeir eru 6 cm háir og bollaopið er 10,5 cm í þvermál. Undirskálarnar eru 4 og eru 14,8 cm í þvermál. Kökudiskarnir eru 2 og þeir eru 15,9 cm í þvermál. Sykurkarið er með loki og 2 eyrum. Það er 10 cm hátt og 16,5 cm breytt. Rjómakannan er 8,8 cm há og 14,7 cm breið. Með sama safnnúmer eru 3 hlutir úr matarstelli sem er sömu gerðar og kaffistellið. Sósuskálin er sporöskjulaga og er 20 cm löng og 8,3 cm breið. Fatið er sporöskjulaga og er 37,8 cm á lengd og 29 cm á breidd. Skálin er sporöskjulaga og er 23,6 cm á lengd, 17,2 cm á breidd og 4,5 cm á hæð. Neðan á botni allra hlutanna stendur það sama og á botni kaffikönnunar.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer A: 777
Staður
Staður: Ytra-Holt, Dalvíkurbyggð, Svarfaðardalur, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Kaffistell

Upprunastaður

65°57'2.2"N 18°33'19.2"W