Útsaumsprufa, dúkur

1937 - 1938
Útsaumsprufa (dúkur) úr Miðbæjarskóla, að öllum líkindum frá árunum 1937-1938. Saumað með ullargarni í hessianstriga. Tveir mjóir útsaumsbekkir mynda kross í miðju. Útsaumur: Þræðispor, afturstingur, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur) og lykkjuspor. Mislöng tunguspor eru saumuð í kringum dúkinn. Efnið er rakið upp að tunguspori. Stærð: 15.5 x 15.5 sm. Notkun hessianstriga í útsaumi í grunnskóla er dæmi um vöruskort á þessum tíma. Seinna þótti smart að sauma í grófan striga og er hann enn notaður í ýmiss verkefni. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Útsaumsprufa, dúkur
Ártal
1937 - 1938
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-4-2
Stærð
15.5 x 15.5 cm Lengd: 15.5 Breidd: 15.5 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti

Upprunastaður

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W