Prjónaður þvottapoki
1958 - 1962

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Prjónaður þvottapoki. Nemendavinna úr Miðbæjarskóla 1958-1962. Hvítur með tveimur bleikum röndum. Garðaprjónaður kantur að ofan og mjó garðaprjónuð rönd ofarlega á pokanum (bleik). Megin pokinn er prjónaður með sléttu og brugðnu prjóni sem myndar kafla. Síðar gekk það undir heitinu þvottapokamunstur. Heklaður hanki. Pokinn var skylduvinna í 10 ára bekk samkvæmt drögum að námskrá 1948.
Handavinnukennari Kristínar í Miðbæjarskólanum var Guðrún Sigurðardóttir, F.15.7.1905. D.15.7.1995. Við bendum á fróðlega grein sem Guðrún skrifaði í tímarit Heimilisiðnaðarfélags Íslands, Hugur og hönd árið 1983. Þar skrifar hún um handavinnukennslu í Barnaskóla Reykjavíkur, Miðbæjarskólanum, en hún kenndi við skólann frá 1930-1969.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Kristín Þórðardóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Kristín Þórðardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Kristín Þórðardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Prjónaður þvottapoki
Ártal
1958 - 1962
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-30-1
Stærð
13 x 11 cm
Lengd: 13 Breidd: 11 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Upprunastaður
64°8'42.0"N 21°56'20.8"W


