Fjölskylda

Þorvarður Sveinsson frá Álftártungu og Guðrún kona hans, ásamt börnum sínum.  Þorvarður og Guðrún eignuðust auk þeirra átta á myndinni, tvo drengi sem létust í frumbernsku, Þorstein f. 2.7.1882, d. 8.9.1882 og Guðna Martíus f. 6.9.1883, d. 11.3.1884. Þorvarður fór til Vesturheims 1886, og Guðrún k.h. kom með fimm börn ári síðar 1887, Jón Júlíus virðist hafa farið seinna. Það lítur út fyrir að þau hafi eignast tvö börn í Vesturheimi, en þeirra er ekki getið í Borgfirskum æviskrám. Myndir frá fjölskyldu Ásgeirs Bjarnasonar (1853 - 1943) og Ragnheiðar Helgadóttur (1855 - 1946), Knarrarnesi á Mýrum. Afhendandi: Bryndís Bjarnadóttir (f. 1923). 

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 1998-2-339
Stærð
21 x 26 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Ljósmyndasafn Borgarfjarðar
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Fjölskylda