Nemendavinna

1960 - 1961
Nemendavinna úr 9 ára bekk í Mýrarhúsaskóla veturinn 1960 – 1961. Handavinnupoki. Pokinn er allur handsaumaður. Hann er skreyttur útsaumslínum meðfram hvorri hlið, bæði að framan og að aftan. Útsaumsspor: Krókspor og ídregið þrefalt þræðispor. Fangamarkið ÞJ er saumað á framhlið pokans ásamt mynd af hreindýri. Hvorutveggja saumað með krosssaumi. Aftan á pokanum er ártalið 1960 og fyrir ofan það er mjór munsturbekkur saumaður með aftursting og skáspori. Ath; skásporin eru saumuð á mismunandi vegu þó útlitið sé eins. Pokinn er dreginn saman að ofan með heklaðri snúru. Snúrugöngin (rás, renna) að ofan eru saumuð niður með útsaumssporum, aftursting og krosssaumi. Stærð á poka: 29 x 24 sm. Samkvæmt námskrá frá 1960. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Nemendavinna
Ártal
1960 - 1961
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-49-6
Stærð
29 x 24 cm Lengd: 29 Breidd: 24 cm
Staður
Staður: Mýrarhúsaskóli, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð:
Skólahandavinna

Upprunastaður

64°9'6.9"N 21°59'17.8"W