Herðatré,Nálabók, Blúnda
1961 - 1963

Varðveitt hjá
Borgarsögusafn Reykjavíkur
Jónína María gefur skólahandavinnu sína úr Melaskóla:
a) Herðatré. Prjónað utan um herðatré. Nemendavinna úr Melaskóla 1961-1962.Garðaprjón, rauður litur. Ein lína saumuð með grófu krókspori (hexispor) framan á herðatréð. Tunguspor (kappmelluspor) saumað utan um krókinn á herðatrénu (mjög slitið).
b) Lítil nálabók. Nemendavinna úr Melaskóla 1961-1962. Útsaumur: Varpað þræðispor, ídregið tvöfalt þræðispor, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur) og oddaspor. Tunguspor (kappmelluspor) saumað í kantinn og efnið rakið upp að tungusporinu. Inn í nálabókinni er lítið garðaprjónað stykki fyrir nálar. Bókin er bundin saman með tveimur fléttuðum snúrum. Jónína man að það þurfti að spara gula garnið, hún gat ekki fengið meira.
c) Hekluð blúnda. Nemendavinna úr Melaskóla 1962-1963. Blúnduna heklaði Jónína í 10 ára bekk. Hún saumaði hana á koddaver sem hún gerði einnig í 10 ára bekk. Koddaverið slitnaði en blúndan ekki.
Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.
Aðrar upplýsingar
Jónína María Sveinbjarnardóttir, Hlutinn gerði
Gefandi: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Gefandi: Jónína María Sveinbjarnardóttir
Skrásetjari: Sigrún Guðmundsdóttir
Skrásetjari: Sigrún Laufey Baldvinsdóttir
Titill
Sérheiti: Herðatré,Nálabók, Blúnda
Ártal
1961 - 1963
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-40-1
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Skólahandavinna







