Prufumappa - 12 ára mappan)

1975 - 1978
Prufumappa. Pappírsmappa, merkt Kristín Garðarsdóttir. Öldutúnsskóli, 4. 5. og 6. bekkur K 1975. Innan í eru þunn pappaspjöld með ýmsum prufum. Verkefnin eru unnin á þremur árum en eru í megin atriðum þau sömu og nemendur unnu í 12 ára bekk (12 ára mappan). Samkvæmt námskrám 1960 og 1977. Innihald möppu í sömu röð og er í möppunni Garðaprjónsprufa. Ýmsar saumgerðir. Þræðispor, lykkjuspor, afturstingur, oddaspor, leggsaumur (kontorstingur, varpleggur), krosssaumur og tunguspor (kappmelluspor) utan um. Slétt prjón (og garðaprjón). Fastahekl og stuðlahekl. Flatsaumur. Leggsaumur (kontorstingur, varpleggur). Handsaumað hnappagat og tautala. Stoppað og lykkjað saman í prjóni. Á bakhlið eru skriflegar leiðbeiningar, stjörnuúrtaka. Handsaumuð hnappagöt, lárétt og lóðrétt. Á bakhlið eru skriflegar leiðbeiningar yfir hnappagöt. Stafamerkingar: Fangamarkið KG með ferningsspori og ártalið 1978 saumað með augnsaumi. Munstur í hornum, krosssaumur og afturstingur. Mislöng tunguspor (kappmelluspor) utan um prufuna. Skriflegar leiðbeiningar. Háleistar með oddahæl (frönskum hæl) og stjörnuúrtöku. Framhald á baksíðu. Skriflegar leiðbeiningar. Framhald á baksíðu. Lítil síða. Krosssaumur. Lítil stoppuprufa. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla. 

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Prufumappa - 12 ára mappan)
Ártal
1975 - 1978
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-21-1
Stærð
0 x 21 x 21 cm Breidd: 21 Hæð: 21 cm
Staður
Staður: Öldutúnsskóli, 220-Hafnarfirði, Hafnarfjarðarkaupstaður
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Prufumappa
Efnisorð:
Skólahandavinna