Handavinnupoki

1937 - 1938
Handavinnupoki merktur MG. Pokinn er unninn í Miðbæjarskóla, að öllum líkindum á árunum 1937-1938. Handavinnupoki var skyldustykki í barnaskóla frá 1936. Pokinn er allur handsaumaður. Faldurinn að ofan er brottinn yfir á röngu og saumaður niður í höndum. Saumuð er mjó krosssaumslína yfir faldbrún á réttu. Á annarri hlið pokans eru upphafsstafirnir MG saumaðir með krosssaumi. Pokinn er dreginn saman að ofan með snúinni bómullarsnúru (blá og hvít). Pokinn hefur greinilega verið mikið notaður því hann er þunnur af sliti og með litlum götum. Stærð: 27 x 22.5 sm. Söfnun, greining og skráning. Sigrún Guðmundsdóttir fyrrverandi lektor í textílmennt við Menntavísindasvið HÍ og Sigrún Laufey Baldvinsdóttir fyrrverandi textílkennari við Grunnskóla Seltjarnarness, Mýrarhúsaskóla.

Aðrar upplýsingar

Titill
Sérheiti: Handavinnupoki
Ártal
1937 - 1938
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2017-4-1
Stærð
27 x 22.5 cm Lengd: 27 Breidd: 22.5 cm
Staður
Staður: Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 1, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Miðbærinn, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Skólahandavinna - textíll
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Handavinnupoki
Efnisorð:
Skólahandavinna
Efnisorð:
Textíll

Upprunastaður

64°8'42.0"N 21°56'20.8"W