Höfundarréttur: Myndstef, Steina Mynd: Listasafn Íslands

Bókfell

= 2015, Steina
Varðveitt hjá
Listasafn Íslands

Aðrar upplýsingar

Titill
Verkheiti: Bókfell Enskt verkheiti: Pergament
Ártal
= 2015
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-9049
Stærð
Tímalengd: 00:12:31
Sýningartexti
Í febrúar 2014 dvaldi Steina um mánaðar skeið á Íslandi og vann að hugmynd um rafrænt verk í samvinnu við Vasulka-stofu, Listasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún fékk aðgang að handritunum í Árnastofnun og þannig birtist ný hlið á höfundarverki hennar þar sem fornsögunum, okkar dýrmæta menningararfi, er búin nýstárleg umgjörð í formi rafræns listaverks. Í verkið valdi Steina ýmis handrit sem hún skeytti saman með hugvitssamlegum hætti þannig að þau líða áfram og vindast, snúast, umhverfast og bólgna út líkt og bóluþang í straumröst. Í fyrsta sinn verður ritlistin og blekteikningin Steinu að viðfangsefni þegar blóðrauðir höfuðstafir og mölétnar myndir renna fyrir augum áhorfandans í hægfljótandi sístreymi.
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Útgáfa / Sería
1 / 8
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Myndstef Höfundarréttur: Steina