Endurminning

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-79
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ég átti tvær ömmur. Önnur var alltaf góð, kom í heimsókn og við til hennar. Stundum var hún í upphlutnum sínum, svo falleg. Hún átti mörg góð orð um hve góður,duglegur og fallegur maður var. Hún gaf mér brúðargjöf tveimur árum áður en ég gifti mig, taldi sig ekki verða lifandi þegar ég léti úr því verða sem var svo alveg satt hjá henni. Þegar ég var lítil bjó hún í Vestmannaeyjum svo að ég fór með flugi í eitt skipti til hennar í heimsókn. Hin var oftar í því að siða barnið, kenna því góða siði og guðhræðslu. Hún skammaði mig þegar ég átti mitt fyrsta barn, maður var ekki nægjanlega góður, (sem hann var svo auðvitað ekki). Báðar voru þær í sama sértrúarsöfnuði á sama tíma. Ég hitti svo þessa seinni nokkrum sinnum með litla barnið mitt en hætti svo bara að heimsækja hana vegna þess hvað hún nöldraði í mér.+ Meira hef ég nú ekki að segja um ömmurnar mínar.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Endurminning
Efnisorð:
Amma