Endurminning

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (Aldur ekki skilgreindur)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-50
Staður
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Amma mín var yndisleg kona, skemmtileg og mikill svona bóhem í sér, klæddist síðum mussum og kunni vel við allt sem sneri að listsköpun og list. Hún hafði afar gaman að því að sauma og allt sem hún gerði var vandað og afar fallegt. Amma og systur hennar höfðu mikinn áhuga á draumum og dulspeki og ég man vel þegar þær voru að ræða draumana og ráða í það hverju þeir væru fyrir. Amma mín var líka mikill sóldýrkandi, hún lá úti í garði og sleikti sólina og fór líka oft út í Öskjuhlíð í sömu erindargjörðum.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Endurminning
Efnisorð:
Amma