Endurminning

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1946)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-29
Staður
Núverandi sveitarfélag: Flóahreppur, Flóahreppur
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Hún Lára amma mín í Hrygg var fædd í Króki í Hraungerðishreppi. Ég var meir og minna alin upp hjá henni og Guðjóni Afa. Ég man vel eftir þegar hún var að kenna mér að prjóna. Ekki hef ég verið gömul þá því hún dó árið 1955 um haustið. Þetta sumra, 1955 muna allir sunnlendingar enda með afbigðum votvirasamt. En ég man eftir sólmyrkvanum. á voru allir komnir inn í midagskaffi og sáru allir í kring um borðið og svo dimmdi og mer finnst i minningunni að allir hafi smækkað að stærð, ég se þetta fyrir mér, eg fædd 1946. Svo dimmdi og kólnaði og allt varð hljótt. Það var enginn verulega vel undir þessi ósköp búinn, en vissu samt. En núna vita allir allt um væntanlegan sólmyrkva og búnir að fá sér sérstök gleraugu og allt. Hún Amma min kenndi mér líka að lesa. Að kveða að hét að, undirbúningur fyrir lestur. En þegar ég kom til Rvíkur og fór í Tímakennsluna hjá Helga Þorlákssyni, 6 ára gömul, urðu þetta einhver vandræði, þar var kenndur hljóðlestur og ég ruglaði öllu saman, varð sennilega lesblind úr út öllu saman... Lára amma mín var stór og myndarleg kona, en Guðjón Afi lítil og mjór. Þau voru mér afskaplega góð og ólu mig upp til 6 ára aldurs og ég var í sveitinni til 15 ára aldurs hjá afa, reyndar bara á sumrin. Nóg að gera í svietinni. Svo var það Helga föðuramma mín. Þær voru systur, ég er sem sé skyldleikaræktur, en bara alveg venjuleg samt. Helga átti heima á Víðimelnum og var Magnús afi minn togarasjómaður. Hann sigldi öll stríðsárin til Englands og var skipið hans ekki fyrir neinum skakkaföllum. En 2 árum ca eftir stríð tók afa út af togara. Skrítið þetta líf. en Helga amma átti mjög fallegt og skrautlegt heimili. Afi kom með dót i búið erlendis frá. ég erfði silfurubolla stell eftir Helgu ömmu þegar búinu hennar var skift.. Ég er alltaf að dást að því núna að eg á bæði Mömmu og tengdamömmu á lífi og ég sjálf fædd 1946. Þær tiltölulega hressar.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Endurminning
Efnisorð:
Amma