Borðbúnaður

1910 - 1950
Tveir matargafflar og einn borðhnífur, úr sama hnífaparasettinu. Sköftin eru með samstæðu, gröfnu mynstri. Hnífurinn er 23,2 cm langur en gafflarnir 20,3 cm og 20,8 cm langir. Gripirnir eru úr búi föður gefanda, Alexanders Einbjörnssonar (1922-2015). Þeir eru að líkindum frá fyrri hluta 20. aldar. Eilítið ryð er farið að sjást í málminum og tennur gafflanna eru orðnar nokkuð beyglaðar. En þótt borðbúnaðurinn sé sýnilega mikið notaður þá eru áhöldin í góðu ástandi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1910 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2016-58-3
Stærð
23.2 x 0 cm Lengd: 23.2 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Borðbúnaður