Tóbaksdós

Sporöskjulaga tóbaksdósir úr tini, alskreyttar laufa- og teinungamynstri og fyrir miðju loki er mynd af beisluðum hesti á hlaupum. Dósirnar eru orðnar töluvert máðar og bera það með sér að hafa verið all nokkuð notaðar. Þær eru vafalaust erlendar. Löm er nú brotin en annars eru dósirnar í góðu ástandi. Faðir gefanda, Alexander Einbjörnsson, fann dósirnar í kringum 1936 á Stakkhamarsnesi á Snæfellsnesi. 

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2016-58-2
Stærð
6 x 3.6 x 1.6 cm Lengd: 6 Breidd: 3.6 Hæð: 1.6 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Fundaskrá Undirskrá: Fundaskrá_Lausafundir
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Tóbaksdós