Eldspýtnabréf
1975 - 1985

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Þrjú mismunandi eldspýtnabréf með íslenskum auglýsingum á. Tvö þeirra eru merkt ÁTVR, Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Á öðru þeirra, sem er að mestu leyti hvítt og brúnt, eru auglýsingar frá Ölgerðinni fyrir Pilsner og Maltextrakt og að innanverðu eru listar yfir framleiðslu fyrirtækisins (Ölgerðin Egill Skallagrímsson). Bréfið er framleitt í Póllandi. Allar eldspýturnar hafa verið notaðar. Hitt bréfið er hvítt, blátt og rautt og á framhliðinni er auglýsing, mynd af Opal-pakka, rauðum, og fyrir neðan stendur: ALLRA VAL. Á hinni hliðinni er auglýsing frá Húsgagnaframleiðanda. Fyrir miðju er mynd af stól á bláum grunni, fyrir ofan myndina stendur: SÓLÓ HÚSGÖGN og fyrir neðan han: STERK OG STÍLHREIN. Frekari upplýsingar um fyrirtækið og framleiðslu þess er að finna inni í eldspýtnabréfinu. Eldspýturnar hafa allar verið notaðar en nokkrar þeirra eru enn fastar í bréfinu, hálfbrunnar. Þriðja bréfið er með auglýsingum fyrir flugfélagið Loftleiðir. Að framanverðu er ljósmynd af flugvél að taka á loft og að aftanverðu stendur: LOFTLEIÐIR ICELANDIC og þar neðan við er merki félagsins. Allar eldspýturnar hafa verið notaðar.
Systir gefanda, Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir, safnaði barmmerkjum og eldspýtnastokkum á bernsku- og unglingsárum sínum. Kjarninn af eldspýtunum var erlendur en inn á milli voru íslensk eldspýtnabréf. Þau voru í kassa ásamt barmmerkjum nr. Þjms. 2016-25-1. Guðrún Jarþrúður hefur ekki tekið kassann með sér þegar hún fluttist úr foreldrahúsum og gripirnir því dagað uppi á bernskuheimilinu að Tjarnargötu 38 í Reykjavík þar sem þeir fundust nú í geymslu með öðru dóti.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1975 - 1985
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2016-25-2
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Eldspýtnabréf



