Dúkur

Varðveitt hjá
Heimilisiðnaðarsafnið
Kommóðudúkur úr lérefti með hvítsaumi saumuðum með bómullargarni. Grenisveigar hlykkjast frá einni hlið til annarrar. Sveigarnir slitna og hringast upp í hornum, í miðju að framan, á báðum hliðum og sitthvoru megin við miðju að framan. Mislangur tungukantur er kappmellaður og tvö göt á milli tungna saumuð með enskum saumi.
Saga: Úr eigu Elísabetar Magnúsdóttur , húsfreyju í Bólstaðarhlíð. F: 27.04.1891 D: 03.04.1964. Fædd á Kjartansstöðum í Skagafirði. Giftist Klemensi Guðmundssyni en þau skildu árið 1952. Hún var á Kvennaskólanum í Reykjavík fyrir 1918.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Dúkur
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: HIS-1629
Stærð
97 x 55
Lengd: 97 Breidd: 55
Staður
Staður: Bólstaðarhlíð 1, 541-Blönduósi, Húnabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Heimilisiðnaðarsafnið
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Dúkur, skráð e. hlutv.
Upprunastaður
65°31'22.1"N 19°48'21.2"W
