Ljósalampi, til lækninga

1940 - 1960
Sólveig Sigurbjörnsdóttir ekkja Björns, færði safninu lampann.  Taldi hann vera um 40 ára gamlan.  Var í ljósastofu sem Björn rak í Keflavík.  Í lampahausnum eru tvö hitaelement og ein ljósapera.  Þar er einnig takki sem hægt er að snúa milli "off", "ultra violet" og "infra red".  Á lampanum stendur.  Sperti irradiation lamp, combining ultra, violet and infra red UL Moder S-200E.  Fótur lampans er skeifulaga úr gráhömruðu járni.  Upp af honum gengur 60 cm löng stöng úr sama efni og eins á lit.  Ofan í þá stöng gengur krómuð stöng sem hægt er að draga upp og niður og festa í mismunandi stöðu.  Lampinn (hausinn) er festur efst á krómaða stöng, bogadregna, sem festist við krómuðu, beinu, stöngina.  Lampinn er í góðu lagi.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1940 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer A: NS-5203 Safnnúmer B: 1994-431
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Lækningaminjasafnið_Nesstofusafn (NS)
Efnisorð / Heiti