Sjálfsmynd með sjö draugum
= 1988, Hulda Hákon

Varðveitt hjá
Listasafn Íslands
Lágmyndir Huldu Hákon eru yfirleitt grófgerðar og líta sumar hverjar út fyrir að vera búnar til úr spýtnabraki sem
hún neglir og límir saman og málar í skærum og dökkum litum. Persónurnar á myndunum steypir hún í mót
og eru engar tvær eins. Vinnuaðferðin og efnisvalið stjórnast af vanmætti hennar gagnvart viðfangsefninu.
„Þetta er klastur og þess vegna vil ég hafa þetta svona.“ (Morgunblaðið, 3. apríl, 1998) Hún vill að verkin
séu tímalaus og segist ekki leitast við að fanga tíðaranda. Konan á lágmyndinni er í frekar tímalausum
kjól og það er dæmigert íslenskt veður, hvorki rigning né sólskin. Grjóthleðslan neðst á myndinni gæti
verið táknræn fyrir íslenska þjóðmenningu en sjálf líkir Hulda grjótheðslu við sagnaarfinn. Fólk heldur
áfram að bæta við hleðslum og það heldur áfram að bæta við sögum.
Stundum birtast textar í verkum Huldu og oft eru þeir bæði háðslegir og ljóðrænir. Í verkinu Sjálfsmynd
með sjö draugum er titillinn skrifaður á spýtnabrak neðst á myndinni. Þegar rýnt er í verkið kemur í ljós að
draugarnir á myndinni eru níu talsins. Staðhæfi ngin í textanum stangast á við myndina sjálfa og vekur upp
spurningar. Veit listakonan ekki af þessum tveimur draugum eða er hún að reyna að blekkja áhorfandann?
Það getur verið erfi tt að þekkja drauga. Sjálf segist hún leika sér með texta í myndum sínum. Stundum notar
hún setningar sem eru út í hött og þá opnast ókannaðar slóðir. Verkið kemur á óvart og minnir á hugtakið
„ekki er allt sem sýnist“. Ef til vill endum við öll sem draugar!
Aðrar upplýsingar
Titill
Verkheiti: Sjálfsmynd með sjö draugum
Enskt verkheiti: Self-Portrait with Seven Ghosts
Ártal
= 1988
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: LÍ-7242
Safnnúmer B: 242
Stærð
70 x 230 x 0 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Aðalskrá
Áletrun / Áritun
Áritun: H. HAKON
Áletrun: SJÁLSMYND MEÐ SJÖ DRAUGUM - SUMAR 1988
Flokkun
Efnisorð / Heiti
Útgáfa / Sería
1
Höfundarréttur
Höfundarréttur: Hulda Hákon
Höfundarréttur: Myndstef
