Sníðahjól

1940 - 1960
Sníðahjól / sníðajárn úr koparblöndu, merkt: RICHARDSON'S REG. NO. 530730. Það er frekar smátt, eða 7,7 cm langt en hjólið sjálft 2,3 cm í þvermál. Það er úr eigu Svövu Lárusdóttur (1911-2002), en hún var móðir gefanda. Svava var mikil saumakona og starfaði m. a. á saumastofunni Feldinum, Þingholtsstræti 27 í Reykjavík. Ætla má að sníðajárnið sé frá því um eða eftir miðja síðustu öld.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1940 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-42
Stærð
7.7 x 2.3 x 0.7 cm Lengd: 7.7 Breidd: 2.3 Hæð: 0.7 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sníðahjól