Botnamerki, f. síldartunnur
1924 - 1970

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Botnamerki söltunarstöðvar Olavs Henriksen. Efribotnamerki, hálftunna. Gefandi merkisins, Guðlaugur Henriksen, var barnabarn Henriks Dybdahl Henriksens sem stofnaði Henriksenstöðina árið 1903 á Siglufirði og var hún rekin af Henriksenfjölskyldunni allt til ársins 1970 (Benedikt Sigurðsson). Á merkinu stendur: Matjes herring cured in salt brine. Siglufjordur. Iceland. Packed by h/f. O. Henriksen.
Botnamerki: ,,Vörumerki íslenskra saltenda eru oftast nær bókstafir, fangamörk eða full nöfn. Fangamörkin eru oftast samansett af of litlum stöfum, ógreinileg og lítið einkennandi. Sum merki með fullu nafni eru góð, en nöfnin og merkin þurfa að vera þannig, að kaupendurnir geti fest sér þau í minni. Glöggar myndir eru beztu vörumerkin, en þær eiga að vera svo stórar og greinilegar, að þær skiljist strax, og sérkennilegar, svo þær munist.“ (Magnús Vagnsson, bls. 96).
Aðrar upplýsingar
Gefandi: Guðlaugur Henriksen
Ártal
1924 - 1970
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ-1114
Stærð
33.1 x 38.7 cm
Lengd: 33.1 Breidd: 38.7 cm
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Heimildir
Benedikt Sigurðsson. Síldarsöltunarstöðvar á Siglufirði. Handrit.
Magnús Vagnsson. (1939). Handbók síldverkunarmanna. Siglufjörður: Síldarútvegsnefnd.
