Værðarvoð

1935 - 1950
Værðarvoð / ullarteppi í íslensku fánalitunum og með kögri. Þetta er Álafossteppi og gæti verið frá því um 1935-1950, en vitað er að þegar Kristján X konungur og Alexandrína drottning komu til Íslands árið 1936, heimsóttu þau meðal annars Álafosskvosina og fengu þar að gjöf ullarteppi í fánalitunum. Þá er einnig til ljósmynd eftir Vigfús Sigurgeirsson af heimsókn Sveins Björnssonar forseta að Álafossi árið 1944 þar sem honum er afhent sams konar teppi og þetta. Teppið er 151 cm breitt og 242 cm langt, með kögri. Í tvö horn er handsaumað XXX með rauðu bródergarni. Ekki er hægt að fullyrða neitt um hvað sú merking á að tákna eða stendur fyrir. Teppið er í mjög góðu ástandi en þó hefur eitthvað örlítið slitnað úr kögrinu. Teppið er úr eigu Sigurlaugar Jóhönnu Jónsdóttur (1914-2011) en hún var móðursystir gefanda. 

Aðrar upplýsingar

Ártal
1935 - 1950
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2014-43
Stærð
242 x 151 cm Lengd: 242 Breidd: 151 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Værðarvoð