Bjarg

1900 - 1910
Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Eiríkur Hjálmarsson var barnakennari í Vestmannaeyjum á árunum 1895-1928. Hann fæddist að Ketilsstöðum í Mýrdal 11. ágúst 1856. Snemma missti hann móður sína. Eiríkur fékk ekki mikla bóklega kennslu framan af en las það sem hann fékk lánað og komst í. Til 25 ára aldurs bjó hann hjá föður sínum og lærði á næsta bæ söðlasmíði. Flutti hann þá í Straumfjörð á Mýrum og fann þar eiginkonu sína. Fluttu þau árið 1885 til Vestmannaeyja. Var hann hér við verslunarstörf á Tanganum. Árið 1890 stofnaði hann sinn eigin barnaskóla og rak hann í fimm ár, eða þar til hann var ráðinn við Barnaskóla Vestmannaeyja þegar deildum við skólann var fjölgað. Hann kenndi mest megnis yngri deildinni og hélt góðum aga jafnframt því að vera ljúfur. Kona Eiríks sem er með honum á myndinni hét Sigurbjörg R. Pétursdóttir og giftust þau árið 1888. Keyptu þau tómthúsið Nýja-Kastala. Hann nefndi hús sitt Vegamót og hét það þar til húsið fór undir hraun í gosinu 1973. Þau eignuðust 5 börn. Eiríkur lést 5. apríl árið 1931, 74 ára að aldri. Sigurbjörg, kona hans, lést árið 1946, 82 ára að aldri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
Aldur: 1900 - 1910
Safnnúmer
Safnnúmer A: MRI-25
Stærð
10.5 x 6.5 cm
Staður
Staður: Vegamót, Urðavegur 4, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær, Vestmannaeyjabær, Ísland
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Mannamyndasafn
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Bjarg
Myndefni:
Hjón
Myndefni:
Húsagarður
Myndefni:
Húsfreyja
Myndefni:
Kennari, kennslukona, kennslumaður
Myndefni:
Peysuföt
Myndefni:
Spariföt