Sigurvin SI 16

Varðveitt hjá
Síldarminjasafn Íslands
Sigurvin SI 16, bátur Ágústs Gíslasonar, sem var betur þekktur sem Gústi guðsmaður. Báturinn var smíðaður í Noregi en óvíst er um smíðaár. Hann kom hingað til lands með norskum línuveiðurum en árið 1929 keypti Njáll Jakobsson á Akureyri bátinn. Sama ár var hann borðhækkaður og sett í hann sænsk tvígengisvél af Solo-gerð og dró báturinn nafn sitt af honum, Sóló EA 299. Gústi eignaðist bátinn árið 1949 og gerði hann út frá Siglufirði í kompaníi við Drottinn almáttugan um áratugaskeið. Allar tekjur af útgerðinni runnu til kristindómsfræðslu barna í fjarlægum heimshlutum. Báturinn var afskráður árið 1986.
Báturinn var endurgerður árið 1992 af feðgunum Jóhanni Sigurðssyni og Nirði Jóhannssyni. Endurgerðin var kostuð af útgerðarfélaginu Siglfirðingi hf..
Sigurvin er varðveittur í Bátahúsi Síldarminjasafnsins.
Aðrar upplýsingar
Titill
Sérheiti: Sigurvin SI 16
Efni
Safnnúmer
Safnnúmer A: SÍ
Safnnúmer B: 2015-16
Stærð
5.49 x 1.83 m
Lengd: 5.49 Breidd: 1.83 m
Staður
Núverandi sveitarfélag: Fjallabyggð, Fjallabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
