Sjópoki

Handsaumaður sjópoki með látúnskósum. Bandið er fléttað á veglegan hátt. Þorsteinn Magnússon sem saumaði og notaði pokann var togarasjómaður í Reykjavík og sigldi m.a. í báðum heimsstyrjöldunum. María Kristjánsdóttir, bróðurdóttir Þorsteins, varðveitti pokann og óskaði að sjópokinn yrði afhentur Sjóminjasafni Reykjavíkur eftir hennar dag. Gefandinn, Sjöfn, er barnabarn Maríu.

Aðrar upplýsingar

Safnnúmer
Safnnúmer B: 2014-8-1
Stærð
100 x 50 cm Lengd: 100 Breidd: 50 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Sjóminjasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sjópoki