Hafnsögumaður

1920 - 1930
Varðveitt hjá
Byggðasafnið Skógum
Hannes Jónsson fæddist 21. nóvember 1852 í Nýja-Kastalaí Eyjum. Faðir Hannesar drukknaði þegar Hannes var nokkurra mánaða gamall og ólst hann því upp hjá móður sinni og hóf eigin búskap þegar hann var 26 ára gamall, sama ár og hann kvæntist eiginkonu sinni Margréti Eyjólfsdóttur. Hannes var hafnsögumaður við Vestmannaeyjahöfn í heil 50 ár. Það starf lánaðist honum mjög vel. Sem merki um það átti hann fullt traust erlendra skipstjóra sem hingað sigldu, hrósuðu þeir honum fyrir dugnað og hagsýni. Hannes var sæmdur heiðursmerki fálkaorðunnar fyrir sjómennskuferilinn, hafnsögumannsstarfið og annað. Á áttræðisafmæli  sínu, árið 1932, var hann gerður að heiðursborgara Vestmannaeyja og var þar með fyrsti heiðursborgari Vestmannaeyjum.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1920 - 1930
Safnnúmer
Safnnúmer A: MRE-72
Stærð
10.5 x 6.5 cm
Staður
Staður: Miðhús, 900-Vestmannaeyjum, Vestmannaeyjabær
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Rangæingar
Efnisorð / Heiti
Myndefni: Hafnsögumaður
Myndefni:
Höfn
Myndefni:
Maður
Myndefni:
Vinnuföt