Ljósmynd, með ramma
Varðveitt hjá
Minjasafn Austurlands
Mynd af Þuríði Jónsdóttur og Nikulási Guðmundssyni bændum í Arnkelsgerði á Völlum. Myndin er í fallega útskornum ramma sem unnin var af Geir G. Þormar tréskera sem bjó á Akureyri en var ættaður frá Geitagerði. Myndirnar teknar á ljósmyndastofu Eyjólfs Jónssonar á Seyðisfirði. Nikulás var lengi oddviti Vallahrepps og forystumaður í félagsmálum " Vallnamanna" Þuríður var ljósmóðir. Ramminn er útskorinn og eru fjórar myndir, ferkantaðar, á hverju horni; ein af steini (líklega grettistak). önnur af hver (Geysir ?). þriðja af fugli (haförn) og fjórða af víkingaskipi. Þrjár hvítar plötur, líklega úr hvaltönn, með áletrunum; Þuríður Jónsdóttir - Nikulás Guðmundsson - " Við þökkum ykkur langt og vel unnið starf fyrir sveitarfélagið. Íbúar Vallahrepps." G.G.Þ Myndin hékk frá 1965 (ca) í arinstofunni á Iðavöllum. Afhent í veislu við vígslu hússins og var gjöf frá íbúum Vallahrepps og þeim þökkuð vel unnin störf. Þuríður var ljósmóðir og Nikulás var bóndi hreppstjóri og oddviti. Þuríður Guðmundsdóttir í Tunghaga afhenti safninu myndina fyrir hönd ættingja 14.11. 2003, þegar sameining Vallahrepps við Egilsstaðahrepp varð og ljóst að ekki yrði rekstur á Iðavöllum í sömu mynd og áður var.
Aðrar upplýsingar
Geir G. Þormar, Hlutinn gerði
Eyjólfur Jónsson, Hlutinn gerði
Iðavellir félagsheimili Vallahrepps, Notandi
Eyjólfur Jónsson, Hlutinn gerði
Iðavellir félagsheimili Vallahrepps, Notandi
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: MA
Safnnúmer B: 2003-315
Stærð
0 x 73 x 60 cm
Breidd: 73 Hæð: 60 cm
Staður
Staður: Arnkelsgerði, 701-Egilsstöðum, Múlaþing
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Ljósmynd, með ramma
Upprunastaður
65°8'48.9"N 14°30'19.2"W
