Sígarettuhylki

1935
Sígarettuhylki úr silfurpletti. Verðlaunagripur fyrir fyrsta sæti í danskeppni árið 1935. Ytri hliðar hylkisins eru símynstraðar en framhliðin er ennfremur tiglamynstruð. Í tiglinum fyrir miðju eru upphafsstafir þess er átti, Sveins Hólmbergs Jónassonar, sem var framfærslufulltrúi hjá Reykjavíkurborg en jafnframt þekktur dansari. Í innanvert hylkið er grafið: 1. verðlaun fyrir „Tango“ Hótel Borg 1935 Böndin eða teygjurnar sem héldu vindlingunum eru nú horfin. Að auki hefur smellan sem hélt hylkinu lokuðu brotnað af, svo nú er það ætíð opið. Á innanverðri brún eru Fjórir stimplar. Einn þeirra er kóróna en hinir eru ógreinilegri.

Aðrar upplýsingar

Ártal
1935
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2013-91
Stærð
9.3 x 7.9 x 10.3 cm Lengd: 9.3 Breidd: 7.9 Hæð: 10.3 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Sígarettuhylki