Lak
1950 - 1960

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Hvítt lak, saumað úr hveitipokum eða sykurpokum á skömmtunarárunum um og uppúr miðbiki tuttugustu aldar. Sykur- og hveitipokar voru vinsælir á þessum árum og voru notaðir í rúmfatnað og ýmsan annan fatnað. Oft mynduðust raðir við bakhurðir bakaría þar sem húsmæður biðu eftir pokum. Þá þótti gott að þekkja einhvern sem vann í bakaríi og gat orðið manni úti um poka. Lakið er saumað úr átta misstórum efnisbútum. Stafirnir / áletranirnar af pokunum hafa verið þvegnar burt, eins og algengast var áður en saumað var upp úr pokunum. Lakið er í þokkalegu ástandi en hefur rifnað á fjórum stöðum, helst meðfram brúnum, væntanlega þar sem það hefur verið brotið undir rúmdýnu.
Lakið saumaði móðir gefanda, Hanna Andrea Þórðardóttir (f. 1912). Um móður sína segir gefandi m. a.:
„Henni var í blóð borið að fara vel með og nýta til hins ítrasta og það gerði hún. En allt var samt mjög smekklegt og hreint. Það var mikill gestagangur á heimili mínu þegar ég var lítil. Fjölskylda mömmu utan að landi gisti hjá okkur og eflaust hefur verið skortur á sængurfatnaði. [...] Ég veit nú ekki hvað hún móðir mín mundi segja yfir þessu að ég sendi þetta saman skeytta hveitipokalak inn á Þjóðminjasafn, og vona ég að það verði henni ekki til hneisu. En hún var mjög flink saumakona og heimilið var ætíð vel hreint og fallegt.“
Aðrar upplýsingar
Ártal
1950 - 1960
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2013-105
Stærð
196 x 120 cm
Lengd: 196 Breidd: 120 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Lak
