Snældustóll
Varðveitt hjá
Minjasafn Austurlands
Gamal snældustóll fyrir tvær snældur. Prjóna til að halda snældunum vantar. Endarnir eru sporöskjulaga tréplötur. Sú efri (lengd: 22 cm breidd: 5,5 cm) er minni en sú neðri (lengd: 25 cm breidd: 12 cm). Í fremri endann eru stafirnir S og M skornir í ramma. Á hliðarspýtunum eru tvö göt. Kemur frá Dölum í Fáskrúðsfirði. Snældustokkurinn er líklega frá því fyrir aldamótin 1900. Stafirnir S.M. standa fyrir Siggerður Magnúsdóttir, sem var ömmusystir Sigmars Magnússonar en hluturinn kemur úr dánarbúi hans.
Aðrar upplýsingar
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer A: MA
Safnnúmer B: 2002-147
Stærð
25 x 12 x 25 cm
Lengd: 25 Breidd: 12 Hæð: 25 cm
Staður
Staður: Dalir 1, Dalir, 750-Fáskrúðsfirði, Fjarðabyggð
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Almenn munaskrá
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Snældustóll
Upprunastaður
64°57'18.8"N 14°9'54.9"W



