Munsturbók
1880 - 1920

Varðveitt hjá
Þjóðminjasafn Íslands
Þýsk stafa-og saumamynsturbók, Neuestes Stick-Album. Dessins de Broderie. Embroidery-Pattern Book. SR. Þetta er ekki eiginleg bók, heldur renningur sem leggst saman líkt og harmonikka. Prentað er í lit á báðar hliðar hvers spalds. Alls eru spjöldin fimm og mynsturblöðin því tíu. Sex þeirra eru stafamynstur, þrjú útsaumsmyndir og eitt eingöngu mynstur. Mynsturbókin er úr eigu Svövu Lárusdóttur (1911-2002) en mun vera eldri, að líkindum frá árabilinu 1880-1920. Svava var móðir gefanda.
Gripirnir númer Þjms. 2013-18 eru allir úr eigu foreldra og formæðra og forfeðra gefanda en hafa lengi fylgst að hjá henni.
Aðrar upplýsingar
Ártal
1880 - 1920
Efni
Tækni
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2013-18-13
Stærð
11.5 x 7.8 cm
Lengd: 11.5 Breidd: 7.8 cm
Aðfangategund
Undirskrár
Undirskrá: Munasafn
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Munsturbók





