Amma

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1959)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-55
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Frjáls frásögn - án leiðbeininga:
Ég kynntist bara annarri ömmu minni, föðurömmu minni.
Frásögn með stuðningi minnisatriða:
Ég kynntist bara annarri ömmu minni, föðurömmu minni Guðmundu Jónu Jónsdóttur. Hún var fædd 1905 að Kirkjubóli í Valþjófsdal á Vestfjörðum. Amma kynntist afa mínum ung að árum og eignaðist pabba minn aðeins 15 ára gömul. Amma og afi bjuggu fyrst á sveitabænum Hofi í Dýrafirði með kýr og kindur og fluttu síðan til Þingeyrar 1958 og nefndu húsið sitt þar Hof. Ég hitti ömmu sjaldan þar sem við bjuggum á Snæfellsnesi og vorum stór fjölskylda, 7 börn. En ég man eftir ferðunum sem voru farnar einu sinni á ári á Land-Rovernum að heimsækja ömmu og afa. Við þrjú yngstu börnin ásamt mömmu og pabba, haldið af stað vel nestuð, eigi síðar en sex um morguninn til að ná til Þingeyrar um kvöldið. Amma var mjög lífsglöð kona, alltaf brosandi og hafði yndi af öllu í kringum sig. Hún sparaði ekki hólið ef henni fannst einhver vera með fallegt hár, vel klæddur eða hvaðeina í kringum hana eins og blómin. Hún elskaði blóm og ef blómin hennar blómstruðu ekki nóg þá bara stakk hún blómstrandi plastblómum í pottana hjá þeim. Gluggarnir í húsinu þeirra voru þaktir blómapottum með blómum sem fylltu gluggana svo vart sást út um þá. Síðari ár eða þegar þau voru orðin ein gömlu hjónin fór hún að búa til allskyns hluti úr skeljum. Setti skeljar kringum myndir og utan á kassa. Svo seinna muldi hún skeljarnar og steina líka og bjó til allskonar myndir úr mulningnum. Hún hafði mikla unun af að skapa þessa muni. Heimilið var allt fullt af þessu dóti og hún var með sýningar á þessum munum og seldi marga hluti. Núna er barnabarnið hennar og maki hennar með marga af hlutunum þeirra (af fór að mála þegar hann var um sjötugt) til sýnis í gömlu félagsheimili sem er fyrir utan Þingeyri. Það var enginn vondur í augum ömmu bara "ólánsamt fólk". Þetta eru þær minningar sem ég hef frá ömmu. Frá mínum sjónarhóli leið ömmu vel með sjálfa sig og í sínu hlutverki og alltaf skotin í afa.
Við hvaða staði og tímabil er frásögn þín miðuð?
 
Þingeyri kringum 1966-1970.
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti
Efnisorð: Amma
Efnisorð:
Endurminning