Aðrar upplýsingar
Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Kona (1936)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-117
Staður
Núverandi sveitarfélag: Húnaþing vestra, Húnaþing vestra
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
Svör við spurningaskrá Þ.M Um ömmur
Móðuramma mín, Kristín Ingibjörg Gíslad. Var fædd 1867 á Barkastöðum í Miðfirði. Móðir mín var einkabarn hennar (önnur dóttir dó ung) og amma var ekkja. Hún bjó því alla tíð hjá okkur eftir að ég man eftir. Hún var mikill áhrifavaldur í lífi okkar dótturbarna sinna. Og áhrifin voru öll góð. Amma var vinnusöm, samviskusöm og trúuð kona. Aldrei sá ég hana skeyta skapi og aldrei sá ég ótta á henni, nema þegar yngri bróðir minn fæddist, en sú fæðing var erfið. Í þá daga fæddust börn heima. Amma kunni kynstrin öll af ljóðum. Við öll tækifæri hafði hún viðeigandi vísu á hraðbergi, það fór ekki hjá því að við unglingarnir fengjum áhuga á þessari list. Sumar vísur sem amma hafði yfir hef ég hvergi heyrt annars staðar, munu margar þeirra vera nokkuð gamlar, t.d þessi, að líkindum um rússakeisara.
Þar skall hann Pétur Og það fór nú betur Úr sínu hásæti aftur á bak. Margt var hans brallið Og mikið var fallið Það heyrðist sá dæmalaus hlunkur og brak.
Höf ókunnur.
Amma var nýtin og hagsýn.Ég man eftir leirskál sem hún hafði, saumað saman. Skálin hafði brotnað í tvennt, en amma boraði lítil göt á hlutana og saumaði síðan saman með sterku garni. Þessi skál var notuð í mörg ár. Amma kenndi mér bænir og að virða almættið. Hún var mjög friðelskandi og hafði lítið álit á Íslendingasögunum, síst sem lesefni barna. Það var ekki algengt í þá daga, þegar almenningur dýrkaði þessar sögur. Geðprýðiskonan amma mun ekki hafa verið samrýnd tengdaforeldrum sínum. Ef við krakkarnir vorum óþekk sagði hún stundum :ætlarðu að verða eins og hún tengdamamma þín til skapsmunanna ? Eða : Nú ertu svipaður honum Langafa þínum.
Mamma tók Jafnan upp fyrir föðurfólk sitt, sem var margt annálaðir skapvargar. Besta fólk þar fyrir utan, Amma gaf okkur öllum systkynunum silfurskeiðar með áletruðu nafninu okkar. Þær eigum við enn.
Þegar ég kom heim úr minni fyrstu vist, þá 17 ára, sýndi ég ömmu peysu sem húsmóðir mín hafði gefið mér, alla útprjónaða og sérlega fallega, það hefur ekki fallið illa við þig beinni húsmóðir sem gaf þér þetta, sagði amma þá, ánægð og dálítið hreykin. Ég þóttist skilja að henni þótti orðnar góðar vonir um að ég yrði að manni.
Skal ég svo núhætt að sinni um ömmu mína, Kristínu Gísladóttur. Henni verða hvort er aldrei gerð verðug skil.
(..1..)

Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti