Frásögn, skrifleg

09.03.2015

Aðrar upplýsingar

Kyn / Fæðingarár heimildarmanns
Karl (1936)
Ártal
Sent dags: 09.03.2015
Safnnúmer
Safnnúmer B: 2015-1-6
Staður
Núverandi sveitarfélag: Ísafjarðarbær, Ísafjarðarbær
Spurningaskrá / Svör
Allar spurningar
(..1..)
Föðuramma mín hét Guðfinna Björnsdóttir f.24.11.1879, sjá Vesturskaftfellingar 1703-1966, 1.bindi ritstjóri Björn Magnússon, útgefið árið 1970. Hún dó árið 1934 eða tveimur áratugum áður en ég fæddist. Mér var sagt að hún hafi borið mikla persónu og fráfall hennar (sökum veikinda) mikill harmdauði skyldra sem vandalausra.
Móðuramma mín hét Ingibjörg Jóna Sigurlínadóttir f. 8. ágúst 1879, dáin 24. Okt 1973, sjá Vigurætt 6. Bindi bls. 2.724. Hún eignaðist 16 börn, en um 10 náðu fullorðinsaldri. Ég kynntist henni eftir að hún fluttist til Reykjarvíkur um 1946, en fram að því bjó hún í Dýrafirði, bæði í sveitinni og á Þingeyri. Minningar mínar um ömmu eru allar á eina lund. Hún var alvörugefin, trúuð og létt á fæti. Hún bjó hjá dóttur sinni, Auði, fyrst fyrir vestan, lengstaf á Þingeyri en árið 1946 flutti hún til Reykjavíkur og bjó alla tíð eftir það hjá Auði og tveimur dætrum hennar, ásamt seinni manni hennar. Mikill samgangur var á milli mín og fjölskyldu minnar og fjölskyldu ömmu.
(..2..)
Spurningaskrá
Aðfangategund
Efnisorð / Heiti